Sultuklúbburinn...

...var stofnaður 4. oktober 2004.

sunnudagur, desember 18

bústaðarferðin

Ég var að vafra um á vefnum og datt inn á síðu Einingar-Iðju, fann þar eftirfarandi texta um sumarbústaði á Illugastöðum! Þannig að ef við ákveðum helgi og pöntum snemma ættum við að geta fengið bústað með potti!!! Læt textann fylgja með svo þið getið séð sjálfar!

Illugastaðir:Orlofsbyggðin á Illugastöðum í Fnjóskadal er opin allt árið. Aðeins eru 45 km milli Akureyrar og Illugastaða og því stutt að fara. Aðstaðan á Illugastöðum er eins og best verður á kosið. Eining-Iðja á 14 hús á svæðinu og eru þau öll nýuppgerð. Sundlaugin er lokuð yfir vetrartímann en gufubaðið og heiti potturinn eru alltaf opin. Í kjarnahúsinu er fundarsalur sem tekur allt að eitt hundrað manns og því eru Illugastaðir kjörinn staður fyrir fundi, ráðstefnur, námskeið eða mannfagnaði hvers konar. Hægt er að fá tilboð í veitingasölu og uppihald. Benda má á að í Fnjóskadal er mjög gott berjaland og hægt er að fá leyfi til berjatínslu á Illugastöðum. Þar eru einnig seld veiðileyfi í Fnjóská. Fyrir rjúpnaskyttur eru Illugastaðir einnig áhugaverður kostur því þaðan er stutt að komast í góðar veiðilendur. Yfir vetrarmánuðina er upplagt að drífa sig til Illugastaða og taka skíðin og sleðana með því land fyrir gönguskíðafólk er frábært. Einnig eru miklir möguleikar til notkunar vélsleða en gæta þarf að trjágróðri á svæðinu. Á Illugastöðum hefur verið plantað um 100.000 plöntum sem eru sem óðast að setja svip sinn á landið.

Haust- og vetrarleigan hefst 15. september og stendur til 1. júní. Frá og með haustinu 2003 verður hluti af orlofshúsum félagsins á Illugastöðum leigður beint í gegnum skrifstofu félagsins og er hægt að fá upplýsingar eða panta orlofshús í síma 460 3600, en einnig geta þeir sem vilja leigja sér orlofshús þar á tilgreindum tíma hringt beint í Illugastaði í síma 462 6199. Dreift hefur verið plakati og gerð auglýsing vegna vetrarleigu orlofshúsanna á Illugastöðum og má sjá hvort tveggja á pdf-formi hér.

Heitir pottar eru við fjögur hús félagsins.
Helgarleiga í þeim er kr. 9.000.
Verð fyrir helgina í húsum án potts er kr. 7.500.
Öll hús félagsins eru nýuppgerð. Helgarleiga er allt að þrjár nætur. Frítt er í gufubað og heitan pott sem er við sundlaugina á staðnum.

Tekið af síðu Einingar-Iðju www.ein.is 19 desember 2005

12 Comments:

Blogger Stina said...

ég er líka til hvenær sem er...og bara viiiiiiirkilega SPENNT!!!
:O)
Hlakka til að hitta ykkur allar aftur.
Stæner.

7:00 e.h.  
Blogger Aðalheiður said...

Ég er líka spennt, hugsa meira um þetta en jólin! En pant ekki vera í nefndinni til að panta bústaðinn er svo bissí við að koma pósti til ykkar, hitti til dæmis eitt umslag til Öldu, held samt að það hafi verið reikningum :( Ef þið trúið ekki hversu bissí ég er hafið þá bara samband við Eyrúnu!

Ég er annars til í hvaða dag sem er! Ég mæti!!!

7:32 e.h.  
Blogger Guðbjörg said...

já ég er voða spennt:D...hver ætlar svo að panta bústað?

7:42 e.h.  
Blogger Aðalheiður said...

Hvaða dagur er heitastur fyrir barnafólkið??????

7:45 e.h.  
Blogger Guðbjörg said...

helgin 21. og 22. janúar er rosalega góð fyrir mig því þá er von á pabbanum í bæinn...nema að eitthvað klikki!!!

7:51 e.h.  
Blogger Sigga Gunna said...

Ég kemst alltaf að ég held... bara eftir 9. janúar þegar ég verð komin norður. Hlakka bara til :o) Nóg að gera í póstinum hér líka!!!

10:54 e.h.  
Blogger Guðbjörg said...

Já mér heyrist fólk vera nokkuð sátt við dagsetninguna mína...er það ekki annars???...svo það er kannski allt í lagi að athuga hvort að við fáum bústað með potti þessa helgi:)
...ég varð bara að kommenta einu sinni enn;)

11:46 e.h.  
Blogger Aðalheiður said...

já það virðist vera almenn sátt við dagsetninguna þína! Alda hefur reyndar ekki sagt neitt, þú hefur kannski bannað henni að kommmenta?

9:29 f.h.  
Blogger Stina said...

Ég er til í Bubbu dagsetningu, ekkert sem kemur í veg fyrir það...ja nema börnin veikist AKKÚRAT þann dag ;O)
Ég hlakka til :)
Kveðja, Stænerinn.

10:06 f.h.  
Blogger Guðbjörg said...

ég bannaði nú Öldu ekki kommenta...hún samþykkti þetta munnlega eða á msn man það ekki alveg...en ég stóð allavega ekki á tánum á henni né sneri upp á eyrun eða annað þess háttar:D
Ég vildi bara að það gengi hratt fyrir sig að fólk samþykkti dagsetningu svo það væri hægt að panta bústað:)

6:21 e.h.  
Blogger Aðalheiður said...

já ég skil það vel Guðbjörg mín ;) við viljum nú allar fara og því er um að gera að drífa í þessu!!!

7:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

home equity loans

1:59 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home