Sultuklúbburinn...

...var stofnaður 4. oktober 2004.

þriðjudagur, maí 8

Party, party, party

Jæja elskurnar mínar.
Nú þegar fer að líða að lokum annarinnar og skólans hjá sumum langar mig að bjóða ykkur hér í hús í Júrópartý.
Datt í hug að hafa léttar veitingar og skemmtiatriði, en sýnist reyndar að lögin í keppninni sjái flest um þau sjálf....


Alla vega er party at my palace á laugardaginn fyrir þær sem vilja, endilega mætiði, það verður pottþétt stuð!!!!
Ég veit að það er eitthvað um fjölskylduhitting og svona, en we are family, það má ekki gleymast. Síðasti séns í bili að hittast í bili og eiga góða stund SAMAN :O)
Svo er auðvitað í boði að mæta bara hvenær sem er, en þætti vænt um að vita sirka með mætingu í léttu veitingarnar mínar.
Kv. Stína Euroóða.

5 Comments:

Blogger Guðbjörg said...

Hæ hæ og takk fyrir boðið =O)

ÉG hlakka til!!!;)
Viltu ekki að ég komi með eitthvað eða hjálpi til við undirbúning? Ég verð allavega barnlaus þennan dag svo ég þarf ekki að gera neitt nema kjósa og svo er ég "reddí"

10:08 f.h.  
Blogger Sigga Gunna said...

I´m game :o) Læt mig sko ekki vanta í partý ársins!!! Verð laus við utlendingana eftir hádegi svo þú getur alveg fengið mig í undirbúning :o) Get ekki beðið eftir að hitta ykkur!!!

10:30 f.h.  
Blogger Sigga Gunna said...

I´m game :o) Læt mig sko ekki vanta í partý ársins!!! Verð laus við utlendingana eftir hádegi svo þú getur alveg fengið mig í undirbúning :o) Get ekki beðið eftir að hitta ykkur!!!

10:30 f.h.  
Blogger Guðbjörg said...

Flott hjá þér Sigga að skrá þig tvisvar ;)

10:37 f.h.  
Blogger Stina said...

hehe, flott.
Ég er ekki alveg búin að hugsa til enda hverjar veitingarnar verða, en það er yndislegt að fá hjálp sætu sætu. Læt ykkur vita. Úff, gleymdi næstum að skrifa mússí múss!
Mússí múss. turner.

10:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home