Sultuklúbburinn...

...var stofnaður 4. oktober 2004.

miðvikudagur, september 13

Afmæliskveðja!!!

Þessi ofurskvísa á í dag afmæli

úps, rangur Turner þarna!
En hérna er hinn rétti afmælisTurner :)

Elsku stína okkar, innilega til hamingju með daginn :O* Hlökkum til að hitta þig á morgun!!
Kossar og knús
Sulturnar

Þessi fóru í sund í dag...


...og eigandinn skildi ekkert í því af hverju fólk var að glápa á þau!!!

þriðjudagur, september 12

Krossanesborgir og Hundatjörn

Ég er með tillögu!!!

Ég ætla sem sagt að skella mér á Krossanesborgir næsta fimmtudag (14. sept.)kl 16:30 og langar til þess að bjóða ykkur með mér!! Við gætum þarna farið með háfa og veitt í Hundatjörn til þess að sjá hvað er í boði þar í lífríkinu og svo gætum við jafnvel haft með okkur nesti en það fer allt eftir því hvernig veðrið er en aðal ástæðan væri að skoða umhverfið þarna i góðra vina hópi! Svo ég viðurkenni eitt fyrir ykkur þá hef ég aldrei komið þarna þó að þetta sé hérna alveg í bæjarlandinu.

Háfa er hægt að kaupa í RL búðinni á gjafaverði eða aðeins 99 kr.

Endilega kommentið um það hvað ykkur finnst og hvort að þið ætlið að mæta þarna með mér?

fimmtudagur, september 7

Réttir

Görls, það eru réttir á laugardaginn byrja sirka 1-2 er þó ekki sjúr á því! Þær eru í Reistarárrétt í Arnarneshreppnum við Freyjulund!!!