Sultuklúbburinn...

...var stofnaður 4. oktober 2004.

fimmtudagur, september 27

hittingur

Víví rúmlega vika í sultuhitting :)

fimmtudagur, september 13

Hún lengi lifi...húrra, húrra, húrraaaaa....

Hún Stína okkar er ári eldri í dag og því viljum við Sulturnar óska henni til hamingju með daginn =O)

Kossar og knús til þín Stína mín....=O*

fimmtudagur, september 6

Sultur sameinist!


Jæja skvísur, þá er komið að því.


Hér erum við að hittast, Rúnar Sigþórs stæl og allt. :O)
Helgin er fyrsta helgin í október eins og fram hefur komið, staðurinn er Mývó, Heiðas pleis, Birkihraun 6! (Auðvitað sex)

Ákveðið hefur verið að gera hittinginn einstaklingsmiðaðan að því leytinu að fólk velur hvort það komi föstudag og laugardag eða bara laugardag, fer eftir aðstæðum og getu hvers og eins. :O) Heiða býður gistingu, á eitt 120 cm rúm og eitt 90 cm. Ég get svo komið með dýnu sem er vindsæng en er samt ekki vindsæng.


Nú þurfum við bara að plana restina, búa til nefndir, athuga mætingu og fleira.

Kom fram sú tillaga á msn að Eyrún(og Stína litla í maganum) verði í matarnefnd.

Nefndir sem eftir eru eru þá hugsanlega:

Leikja- og skemmtinefnd,

verðlaunanefnd,

fleiri í matarnefnd

(uppástungur þegnar).


Hugmyndin er sú að hittast, styrkja okkar yndislega einstöku tengsl, hafa gaman, slappa af, hafa ekki of mikið planað og Heiða segir að Lónið og Matur sé MÖST! :O)

Hér kemur annars gott copy/paste frá Heiðu:

Aðalheiður í Mývatnssveit says:
en matarnefnd er absúlút eyrún
Aðalheiður í Mývatnssveit says:
já og ég er tilbúin að borga hvað sem er í mat
Aðalheiður í Mývatnssveit says:
góðan kvöldmat
Aðalheiður í Mývatnssveit says:
annars á ég morgunkorn og þannig
Aðalheiður í Mývatnssveit says:
aðallega bara að versla fyrir stóran kvöldverð og mjólk og súrmjólk og þannig
-----------------------------------------------------------------------------------------
En endilega látið heyra í ykkur skvísur. ÉG HLAKKA TIL AÐ HITTA YKKUR!!
Mússí múss, Turner.